top of page
ÍSak Örn Ívarsson
Sálfræðingur

Ísak Örn er klínískur sálfræðingur með sérstakan áhuga á klínískri taugasálfræði, einkum taugasálfræðilegu mati, greiningu og meðferð barna og ungmenna með taugaþroskaraskanir, svo sem einhverfu og ADHD. Hann leggur áherslu á gagnreynd vinnubrögð og samþættingu vísindarannsókna við klínískt starf.


Ísak hefur lokið tveimur meistaragráðum, annars vegar í klínískri sálfræði og hins vegar í megindlegri sálfræði. Hann er jafnframt doktorsnemi við Háskóla Íslands, þar sem rannsóknir hans beinast að sjónrænni hlutaskynjun og tengslum hennar við lestur.
Ísak hefur öðlast fjölbreytta klíníska reynslu, meðal annars á Barna- og unglingageðdeild Landspítala (BUGL) og Minnismóttöku Landspítala. Þar hefur hann fengið þjálfun í taugasálfræðilegu mati og greiningarvinnu. Hann hefur jafnframt reynslu af hugrænni atferlismeðferð (HAM) við kvíða og svefnvanda barna og ungmenna, auk þjálfunar í díalektískri atferlismeðferð (DAM) við tilfinningastjórnunarvanda.


Samhliða klínísku starfi sinnir Ísak vísindarannsóknum, háskólakennslu og tölfræðiráðgjöf. Hann hefur sérstakan áhuga á að nýta klíníska þekkingu sína og rannsóknarreynslu til að stuðla að vönduðu sálfræðilegu mati, nákvæmari greiningum og markvissri meðferð.


Menntun
Ph.D. Sálfræði (Hugræn taugavísindi), Háskóli Íslands, Núverandi.
M.Sc. Klínísk sálfræði, Háskólinn í Reykjavík, 2026.
M.Sc. Megindleg sálfræði, Háskóli Íslands, 2024.


Starfsreynsla
2022 til dagsins í dag | Rannsóknarsálfræðingur, Háskóli Íslands
2021 til dagsins í dag | Stundakennari, Háskóli Íslands
2022 til 2026 | Klínískur rannsakandi, Minnismóttaka Landspítala
2026 | Sálfræðinemi, Barna- og unglingageðdeild Landspítala (BUGL)
2025 | Sálfræðinemi, Betri svefn
2025 | Sálfræðinemi, Skólaþjónusta Reykjavíkur
2023 | Próffræðingur, Menntamálastofnun


Valin símenntun
2025 og 2026 | Hugræn atferlismeðferð við þunglyndi
2025 | Réttindi til fyrirlagnar ADIS-greiningarviðtals
2025 | Hugræn atferlismeðferð við áráttu- og þráhyggjuröskun (OCD) hjá börnum með og án einhverfu
2025 | Foreldramiðuð hugræn atferlismeðferð við kvíða barna
2025 | Atferlisvirkjun
2024 | Hugræn atferlismeðferð við sjálfsvígshættu
2024 | Díalektísk atferlismeðferð (DAM)

ÍsakOrn_edited.jpg

litlakms@litlakms.is - Síðumúli 13 - s: 571-6110

Upplýsingar og verð sem koma fram á vefnum geta breyst án fyrirvara

bottom of page