
Jónatan Baldvinsson
Sálfræðinemi
Jónatan stundar meistaranám í klínískri sálfræði á barnalínu við Háskóla Íslands og útskrifast vorið 2027. Hann sinnir starfsnámi sínu hjá Litlu Kvíðameðferðarstöðinni og hefur einnig sinnt meðferðarvinnu hjá Sálfræðiráðgjöf Háskóla Íslands undir handleiðslu reyndra sálfræðinga. Helstu áhugasvið hans innan sálfræði eru kvíðaraskanir, áráttu- og þráhyggjuröskun og tilfinningavandi.
Hann vinnur að meistaraverkefni sínu undir stjórn Urðar Njarðvík og snýr verkefnið að tengslum mótþróaþrjóskuröskunar og tilfinningastjórnunar. Verkefnið er hluti af langtímarannsókn sem miðar að því að kanna hvort ítarlegt mat á tilfinningastjórnun geti bætt val á meðferð við mótþróaþrjóskuröskun og þar með stuðlað að betri meðferðarárangri. Verkefnið felur meðal annars í sér umfangsmikla greiningarvinnu og meðferðarvinnu með börnum og foreldrum.
Hann hefur undanfarin fjögur ár starfað sem stuðningsráðgjafi hjá Velferðarsviði Reykjavíkurborgar á skammtímaheimilinu og sérhæfðu félagsþjónustunni SkaHm. Þar hefur hann unnið með börnum með fjölþættan tilfinninga- og hegðunarvanda, bæði í einstaklings- og hópastarfi. Starfið felur meðal annars í sér að styðja börn við að vinna að einstaklingsbundnum markmiðum, svo sem með hugrekkisæfingum vegna kvíða, þjálfun í félagslegum samskiptum og öðrum verkefnum sem taka mið af þörfum hvers barns.

