top of page
Sóley María Helgadóttir
SálfræðinEMI

Sóley María er meistaranemi í klínískri sálfræði við Háskólann í Reykjavík og mun útskrifast vorið 2024 sem sálfræðingur. Hún er hjá okkur í starfsnámi á Litlu Kvíðameðferðarstöðinni þessa önnina ásamt því að leggja lokahönd á meistaraverkefnið sitt sem felst í árangursmati á námskeiðinu: Ertu að tengja? Uppeldi, tengsl og foreldrahlutverkið. Sóley hefur meðal annars starfað á leikskóla, í Reykjadal sem eru sumarbúðir fatlaðra barna og ungmenna og á Laugarásnum meðferðargeðdeild. Í meistaranáminu hefur Sóley einnig hlotið starfsþjálfun á Reykjalundi og keyrt foreldramiðaða kvíðameðferð – Hjálp fyrir kvíðin börn. 

 

Áhugasvið í meðferð eru meðal annars félagskvíði, aðskilnaðarkvíði og þráhyggjuárátturöskun. Sóley hefur einnig áhuga á uppeldi og foreldrahlutverkinu.

soleylitlakms.jpg
bottom of page