

Litla Kvíðameðferðarstöðin (Litla KMS) er sálfræði- og ráðgjafaþjónusta fyrir börn, unglinga og ungmenni.
Við sinnum einnig aðstandendum og handleiðum fagaðila.
Fullorðnir geta óskað eftir sálfræðiþjónustu á Litlu KMS en almennt bendum við á Kvíðameðferðarstöðina sem sinnir fullorðnum.
Fréttir og tilkynningar
Fréttir og tilkynningar
Dagsetningar fyrir námskeið og hópmeðferðir eru komnar. Endilega kíkið á það sem í boði er undir tenglunum um opin námskeið og hópmeðferð. Athugið að fleiri dagsetningar gætu bæst við.
Fréttir og tilkynningar
Bilun í símkerfi
Bilun hefur verið í símkerfi okkar síðustu daga og unnið er að lagfæringu. Við biðjumst velvirðingar á þessu og bendum fólki á að senda okkur tölvupóst takist ekki að hafa samband í gegnum síma.
.png)
Fréttir og tilkynningar
Kemstu ekki á staðinn? Viltu breyta í fjarviðtal?
Skjólstæðingar sem geta ekki komið á staðinn geta beðið um að viðtal þeirra fari fram í gegnum Kara connect. Hafið samband við ritara og/eða sálfræðing ykkar tímanlega ef þarf.
