top of page

Vor 2024

  • Fimmtudagar 22. og 29. febrúar (17:15 – 19:15)

  • Miðvikudagar 3. og 10. apríl (17:15 – 19:15)

  • Miðvikudagar 8. og 15. maí (17:15 – 19:15)

 

Þekkir þú barn eða ungling sem glímir við kvíða?

Viltu skilja kvíða betur?

Viltu læra hjálplegar aðferðir við að bregðast við kvíða?

Vinnur þú með börnum/unglingum og vilt fræðast meira um kvíða barna og unglinga?

 

Kvíði 101 er kvíðafræðsla fyrir foreldra, kennara, ömmur og afa, sem og aðra aðstandendur barna og ungmenna sem glíma við kvíða.

Námskeiðið er opið öllum sem vilja fræðslu um kvíða og inngrip við honum með raunprófuðum aðferðum. 

 

Ekki þarf að vera með barn í meðferð hjá Litlu Kvíðameðferðarstöðinni til þess að skrá sig á námskeiðið.

Farið er yfir orsakir kvíða og helstu kvíðaraskanir. Farið verður yfir hjálpleg inngrip og viðbrögð við mismunandi kvíða. Farið verður yfir hvernig eigi að bregðast við ofsakvíðaköstum og greina þau frá vanlíðanarköstum.

Ráð og aðferðir á námskeiðinu byggja á grunnaðferðum í árangursríku uppeldi út frá atferlismótun (samrýmist aðferðum á námskeiðum s.s. Uppeldi sem virkar-færni til framtíðar, PMT, SMT, SOS! Hjálp fyrir foreldra o.s.frv.).

Hópurinn hittist í tvö skipti, tvær klukkustundir í senn. Hámarksfjöldi í hóp miðast venjulega við 12-16 manns.

Verð: 37.500 (ath að tveir fjölskyldumeðlimir geta komið fyrir hvert barn).
Staðfestingargjald sem eru 18.750 kr eða helmingur af námskeiðsverði endurgreiðist ekki ef afbókað er á námskeiðið með minna en viku fyrirvara.

Gert er ráð fyrir að þátttakendum gefist rými til að spyrja spurninga en einungis útfrá almennri umræðu en ekki þannig að rætt sé ítarlega um persónuleg málefni barnsins í opnum hóp. Sé þörf á persónulegri umræðu um vanda aðstandanda er hægt að panta einkanámskeið með því að senda tölvupóst á litlakms@litlakms.is

 

Hægt er að skrá sig á námskeiðið HÉR, í síma 571 6110 eða senda tölvupóst á litlakms@litlakms.is

Kvíði 101

Lecture
bottom of page